Endurgreiðslustefna
Endurgreiðslustefna
Sálarlist áskilur sér rétt til að fella niður námskeið vegna ónógrar þátttöku eða óviðráðanlegra þátta. Komi til þessa geta þátttakendur fengið endurgreiðslu að fullu eða val um að koma á annað sambærilegt námskeið.
Staðnámskeið: Greiðsla fyrir staðnámskeið er ekki endurgreidd nema skrifleg beiðni um afbókun berist að minnsta kosti 3 dögum áður en námskeið hefst.
-Berist afbókun 3 dögum fyrir námskeið er heimilt að óska eftir 50% endurgreiðslu
-Eftir þann tíma er ekki mögulegt að fá endurgreiðslu.
-Afbókanir skuli berast á netfangið salarlist@salarlistis.
Netnámskeið (stafrænt efni):
Netnámskeið hjá sálarlist teljast stafrænt efni.
Þegar kaup hafa verið staðfest og aðgangur að efni veittur, er ekki hægt að fá endugreiðslu.
Með kaupum samþykkir kaupandi að afsala sér rétti til endurgreiðslu í samræmi við reglur um stafrænt efni.
Reikningur verður gefin út á kennitölu þátttakanda og afhentur á námskeiði eða sendur í tölvupósti eftir samkomulagi.
Greiðslur
Hægt er að greiða með korti eða millifærslu.
Námskeið hjá Sálarlist þarf að greiða fyrirfram. Ekki er hægt að greiða á staðnum. Greiðsla jafngildir skráningu og tryggir þér pláss.
Öryggisskilmálar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Upplýsingar um fyrirtækið / söluaðila.
Sálarlist áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Kristín Berta Guðnadóttir
Hlíðarás 17, 221 Hafnarfirði
Sími: 6630574
Netfang: salarlist@gmail.com .